12.09.2006 23:18:59 / kaloria

12.sept.2006

Gengur mjög vel á DDV þótt ég sé hætt að mæta í vigtun. Er heldur ekki á 100% prógrammi sem þýðir í mínu tilfelli að ég borða of lítinn fisk, drekk of lítið af vatni, borða ekki lifur. Að öðru leyti er þetta alveg samkvæmt kúnstarinnar reglum.

Borða alltaf allt grænmetið.
Alltaf 2 brauðsneiðar og í einstaka tilfellum 3
Borða alltaf 1 Ping ís með kaffinu á daginn
Fæ mér alltaf eplaköku, ís, gulrótarköku eða eitthvað annað gott á kvöldin

Borða nánast aldrei pasta/spagettí
Borða aldrei sælgæti eða sykur
Drekk ekki áfengi/vín/bjór

Þetta skilar sér í því að ég stend algerlega í stað og er bara ánægð með mig. Gæti hugsað mér að fara 2 kíló niður til viðbótar, þá tel ég að langþráðri kjörþyng sé náð, en ég er ekki að stressa mig á því.

Gaman að sjá að 5 manns kvittuðu fyrir sig ;-)
Takk fyrir það.

Kaloría

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 16:38:18 / kaloria

7.ágúst 2006


Setti inn uppskrift af banana og gulrótarköku hérna vinstra megin á síðuna, hún er rosalega góð.

Eins og þið sjáið er ég ekki alveg hætt að blogga ;-)

Ég hef verið í vigtarpásu í sumar. Ég er þó ennþá í DDV og hef verið að léttast þótt það sé ekki nema 100 grömm á viku eða svo. Fljótlega ætla ég að mæta aftur í vigtun til að útskrifast ;-)

Ég held að ég eigi bara eftir 2-3 kíló - allavega samkvæmt minni vigt.

Á þessu ári hef ég aldrei svindlað t.d. með því að borða sælgæti, sykraðar kökur eða drukkið vín. Hins vegar hef ég aldrei borðað lifur og ekki verið nógu dugleg að drekka allt það vatn sem mér ber. Einstaka sinnum hef ég líka aðeins slumpað í vigtinni t.d. ekki nennt að vigta brauðsneiðarnar eða kjötið. Það hefur að sjálfsögðu skilað sér í minni léttingi. En ég er ekkert ósátt með það því ég lít á DDV sem lífsstíl en ekki afneitun og mér finnst mjög gaman að finna nýjar og góðar uppskriftir, breyta þeim og bæta svo í DDV uppskriftasafnið mitt. Mér er eiginlega sama hvort ég kemst í kjörþyngd í ágúst eða september.

Ég veit nú ekki hvort ég ætla að fara að blogga á ný, datt eiginlega bara hérna inn því ég var að setja inn uppskriftina að bananakökunni minni.

Það væri nú samt gaman að fá viðbrögð - hvort einhverjir rekast hingað inn. Mér finnst talningin efst í hægra horninu hjá blog central allavega mjög furðuleg og trúi því eiginlega ekki að svona margir heimsæki eða rekist inn á þessa síðu. Ef þú nenntir að lesa hingað, vinsamlega kvittaðu fyrir komu þína :lol:


 

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 18:11:06 / kaloria

Hætt

Ég er hætt að blogga. Mér finnst ég ekki hafa tíma í þetta blogg. Veit eiginlega heldur ekki hvort þetta skilar neinu. Ég sé að það eru 10-30 manns að fara inn á síðuna mína á dag en ég er ekki alveg að trúa þeim tölum miðað við athugasemdir sem ég fæ (fyrir utan klámið sem kemur frá lélegum „síum“ hjá Blog Central). Ég vil þó nota tækifærið og þakka þeim sem hafa hvatt mig og skilið eftir athugsemdir.

Ég er þó engan vegin hætt á DDV - mun bara gera það í „leyni“ héðan í frá.

Gangi ykkur hinum vel!!!

Bestu kveðjur, Kaloría

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 23:22:23 / kaloria

Ferlega lasin

með hálsbólgu og kvef. Er samt að reyna að standa mig. Tók Súper S t.d. alveg á orðinu og fékk mér bara 1/2 banana í dag og nákvæmlega 150 g af vínberjum. Ekkert sukk á þessum bæ takk fyrir ;) Drakk líka 2 lítra af vatni eftir kvöldmat og hefði svo sem alveg eins getað drukkið vatnið sitjandi á salerninu, því það rennur hvort sem er nánast beint niður :lol:

Borðaði soðinn silung í kvöld - algjört ljúfmeti þessi fagurlitaði fiskur!
Langar í eplaköku núna en hef ekki orkuna til að baka hana. Vona að ég verði hressari á morgun. Ætla nú samt að fara að prófa eitthvað nýtt.



» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 20:36:49 / kaloria

Nings og fleira

Mér fannst Nings maturinn góður en ég fékk alveg pottþétt ekki fullan kjötskammt. Svo fannst mér þetta eiginlega bara vera blómkál í réttinum sem var Kjúklingur í ostrusósu. Fannst þetta líka allt of dýrt, borgaði 5200 fyrir fjóra fjölskyldumeðlimi.

Ætla að byrja á nýju DDV prógrammi á morgun, þrátt fyrir kvefið sem er að hellast í mig núna. Fór upp um 100 grömm og er ekki sátt. Átti 100% DDV viku, nema ég hef kannski ávallt verið að gera reginmistök og það er að ég klára oft morgunmatinn í hádeginu. Nú verður allt borðað á réttum tíma í næstu viku og ef ég léttist ekki um uppundir kíló, þá er ég hætt........................ eða þannig! Þá er ég allavega farin út í horn að gráta!!!:cry::cry::cry:

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 17:03:21 / kaloria

ER alveg sannfærð...

um að það er enginn léttingur í dag. Vona bara að ég hafi ekki þyngst. Veit ekki ástæðuna - því það er ekkert svindl í gangi - nema ef vera skyldi það að ég borða stundum morgunmatinn í hádeginu. Þetta er víst bannað.

Núna ætla ég að gera tilraun í þessari viku.
Ætla að borða Camenbert, sultu, ristað brauð og helst grape á hverjum morgni.
Svo ætla ég að borða fisk eins oft og ég get í hádeginu.
Og svo bara þetta venjulega á kvöldin.
Langar að sjá hverju þetta skilar - verð tilraunadýr í eina viku.
Hlakka pínulítið til, því ég er hrifin af Camenbert og sakna hans af matseðlinum.

Svo ætla ég að prófa Nings á eftir - hugsa að ég skelli mér á lifrarréttinn!

Bestu kveðjur,
Kaloría tilraunadýr!

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 20:21:25 / kaloria

Á svo mikið eftir!

Á svo mikið eftir að borða núna kl. 20:17 að ég verð á blístri fram eftir kveldi!!! Svona má bara ekki gerast - það er alveg ferlega að sturta svona miklu í sig á kvöldin.

Annars finnst mér mjög skrýtið að það er hátt í 3 kílóa munur á mér á frá morgni til kvölds. Skrýtið hvað það munar miklu.

Annars held ég að ég hafi ekki lést þessa vikuna. Vikan er annars búin að vera mjög góð - engin DDV stóráföll og ég nokkuð góð í vatninu.

Var að spá í eitt. Stundum klára ég morgunskammtinn í hádeginu. Getur það haft áhrif? Ætla að spyrja um það á blogginu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 19:56:05 / kaloria

Mjög góð sósa

Blandaði saman sýrðum rjóma og mildri Taco sósu og það var mjög gott. Borðaði með kjúklingnum og það var bara voða Mexikó! Mæli með þessu!


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 17:52:11 / kaloria

Er svo léleg í vatninu

Er ekki nógu dugleg að drekka vatn. Næ þó alltaf að klára um 1 lítra á dag en það er þessi eini lítri til viðbótar sem mig vantar að innbyrða. Náði því í gær en nú er klukkan að verða 18:00 og ég er ekki byrjuð að þamba.
Ég skal samt ná þessu.:S





» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 20:04:45 / kaloria

LAX - LAX - LAX og aftur LAX

Átti stóran og stæðilegan lax í frysti og eftir að vera búin að flaka hann var hann smurður með hvítlauk og góðu kryddi. Hann var algjört æði - dauðsé að hafa ekki tekið mynd af honum. UHMMMMM - minnti mig á sumarið! En nú á ég lax á morgun í hádeginu ;-)

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 15:29:25 / kaloria

Pizzan góð

Mikið finnst mér pizzan frá DDV góð! Mér finnst hún betri með skinku en unglingnum á heimilinu finnst hún betri með hakki (Bolognese). Með skinkunni er æðislegt að búa til hvítlauksolíu og setja yfir pizzuna þegar hún er borin fram. Botninn á pizzunni er eitthvað svo svakalega stökkur og fínn. Pizzurnar okkar, þessar sem við gerum úr pítabrauði eru líka góðar, en pizzurnar frá DDV eru svo fín tilbreyting.

Annars bara fínn DDV dagur sem af er degi. Ég er að passa upp á að fá allan vatnsskammtinn og helst fyrripartinn.

Fékk mér svo 1/2 grape í morgun, skilst að það geti aðeins flýtt fyrir brennslu. Veit það einvher, telst einn grapeávöxtur sem heill eða hálfur skammtur af ávexti? Grape er nefnilega eitthvað svo stór ávöxtur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 18:17:09 / kaloria

Mín alltaf jafn dugleg :-)

Fór í afmæli í dag og langaði pínulítið í girnilega eplaköku með heitri karmellusósu og rjóma. Lét það ekki eftir mér og finnst ég dugleg. Þótt ég sé nánast alveg komin yfir sykurþörfina, þá koma stundir, þar sem ég gæti alveg hugsað mér eitthvað hrikalega óhollt og sætt. Og þá hangi ég ekki á neinu nema viljanum. Og að sjálfsögðu uppskerunni - í formi grennri og heilbrigðari líkama!

Þannig að duglega stelpan ég er bara að standa sig!!!

Nú er ég aðeins búin að breyta dagbókarfærslunum á síðunni - og ætla að halda matardagbók hér til hliðar. Veit að fólk sem lítur í heimsókn er ekki að nenna að lesa hana - enda er hún meira fyrir mig - svo ég muni allt sem fer ofan í mig.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 23:52:35 / kaloria

26.01.2006

Morgunmatur
1/2 rúnnstykki, 1 tsk Klípa, 10 g ostur
1 egg
1 banani

Hádegi
1/4 af DDV-pizzu (það er brauðsneiðin)
80 g af túnfiski í olíu (og 30 g sardínur)
Veit ekki nákvæmt olíuinnihald en ég lít svo á sem þetta sé nánast olíuskammtur dagsins.
350 g grænmeti

Síðdegi
300 g vínber (ef ekki meira - gjörsamlega missti mig í heimsins bestu vínberjum!!!)
kaffibolli

Kvöldmatur
Kjúklingafile - 80 g (of lítið - en leið ekki nógu vel)
200 g grænmeti (of lítið)
Fæ nefnilega einstaka sinnum svo mikla flökurleikatilfinningu og finnst ég ekki koma matnum niður - og þá er ekki um annað að velja en borða minna - eða borða um kvöldið. Ég tók fyrri kostinn í dag - kláraði því miður ekki kvöldskattinn minn.
1 l vatn

Kvöldkaffi
Getið bara einu sinni - og það var RÉTT - Eplakaka

Athugasemdir:
Náði ekki að klára skammtana. Tvímælalaust versti DDV- dagur í langan tíma.
Vantar ca 100 g grænmeti og  40 g kjöt. Vigtaði ekki vínberin :( - en reikna með að ég hafi klárað ávaxtaskammtinn í dag. Á örugglega eftir að fá niðurg... af öllum þessum vínberjum! Kláraði tæplega mjólkurskammtinn en held samt að ég hafi verið nokkuð nærri að klára. Kláraði ekki vatnsskammtinn frekar en vant er!

Jæja það geta ekki allir dagar verið góðir!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 19:05:35 / kaloria

25.01.2006

Morgunmatur
1 brauðsneið með osti og Klípu

Hádegismatur (kl. 15:00)
1 brauðsneið
80 g reyktur lax og skinka
80 g brokkál
3 mandarínur
150 g vínber (vigtaði reyndar ekki :S
1/2 l. vatn

Ég álykta að ég eigi þetta eftir:
Allan mjólkurskammtinn
520 g grænmeti
120 g fiskur
olíuna
1,5 l vatn
1,5 ávöxtur

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 19:01:29 / kaloria

Mínus hálft kíló - þetta mjakast

Ég er búin að hafa svo klikkað að gera í dag að ég hef varla borðað. Enda er ég byrjuð núna að úða í mig mat til að klára skammtana. Það er ekki nógu gott þegar svona gerist!

En ég fór niður um 500 grömm. Komin yfir 17 kílóa múrinn!:lol:

Og hvað haldið þið! Ég keypti mér frosna lifur og stefni að því að elda hana á morgun:$ ætla að kíkja á bloggið í kvöld til að finna e-a góða uppskrift.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti